Beint á leiđarkerfi vefsins

Ađ gerast félagi

Heilbrigðisritarar um allt land geta orðið félagar í Félagi heilbrigðisritara. Enginn verður sjálfkrafa félagi.

Rafræn umsókn um aðild að FHR.

Í lögum félagsins segir eftirfarandi um aðilda að félaginu: 

Rétt til fullrar aðildar að félagi heilbrigðisritara hafa þeir sem útskrifast sem heilbrigðisritarar (hjúkrunar- og móttökuritarar) samkvæmt námskrá á hverjum tíma og starfa fyrir heilbrigðisstéttir. Einnig hafa þeir félagar sem hverfa til annarra starfa og einstaklingar sem voru 60 ára og eldri við stofnun félagsins og hafa langan starfsaldur í faginu samkvæmt mati félagsstjórnar.

  1. Enginn verður sjálfkrafa félagi. Starfandi heilbrigðisritarar geta sótt um inngöngu í félagið til stjórnar  og skal það gert skriflega. Það sama gildir um úrsögn félagsmanna úr félaginu.
  2. Kjörgengi og kosningarétt hafa þeir einir sem eru fullgildir félagar, greitt hafa félagsgjöld og eru skuldlausir við félagið þegar framboðsfrestur rennur út. Félagar falla sjálfkrafa úr félaginu ef þeir hafa eigi greitt félagsgjöld síðastliðin 2 ár.
  3. Aðeins fullgildir félagar geta tekið að sér trúnaðarstörf fyrir félagið.
  4. Þá hafa fullan rétt í félaginu þeir fullgildu félagar sem látið hafa af störfum vegna aldurs.

Ţú ert gestur nr. 14610 á vef Félags íslenskra heilbrigđisritara síđan 9. apríl 2008.

 

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré English