Beint á leiđarkerfi vefsins

Nám

Heilbrigðisritaranám er kennt í Fjölbrautaskólanum í Ármúla og er 4ra anna nám, eða 69 einingar.

Þá hefur Fræðslusetrið Starfsmennt boðið upp á svokallað brúarnám fyrir hjúkrunar- og móttökuritara í samvinnu við Fjölbrautaskólann við Ármúla. Það nám er skipulagt fyrir starfandi hjúkrunar- og móttökuritara sem lokið hafa starfstengdum námskeiðum og hafa að baki fjögurra ára starfsreynslu. Um reglulegt nám er að ræða sem nær yfir 2 annir og er námið 20 einingar í heildina.

Markmið náms á heilbrigðisritarabraut er að nemandi öðlist nauðsynlega þekkingu, viðhorf og færni til þess að stunda ritarastörf á heilbrigðisstofnunum, að hann geti unnið í samvinnu við aðra og að hann geti tekist á við raunverulegar aðstæður úti á stofnunum. Um er að ræða sérhæfð ritarastörf sem krefjast fagmennsku. Til þess að ná góðum árangri í starfi þarf viðkomandi að hafa gott vald á íslensku og eiga auðvelt með mannleg samskipti, búa yfir umtalsverðri tölvukunnáttu, sérstaklega í ritvinnslu og sérhæfðum forritum um sjúklinga- og starfsmannabókhald hvers konar, auk þekkingar á hagnýtri notkun upplýsingatækninnar. Jafnframt er nauðsynlegt að þekkja til algengustu hugtaka sem starfsfólk heilbrigðisstofnana notar og hafa innsýn í hugmyndafræði og skipulag heilbrigðisþjónustunnar í landinu.

Alls hafa frá upphafi til ársins 2007 útskrifast 29 konur úr dagskóla og 67 konur úr brúarnáminu.

Aðalnámskrá framhaldsskóla fyrir námsbraut hjúkrunar- og móttökuritara.

 

 


Ţú ert gestur nr. 14610 á vef Félags íslenskra heilbrigđisritara síđan 9. apríl 2008.

 

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré English