Saga
Saga stéttarinnar er frá 1978 er fyrstu ritarnarnir voru ráðnir á deild 13D hjá Landspítala við Hringbraut. Fyrsta starfsheitið var ritari, sem síðan var breytt í deildarritara, þá í hjúkrunarritara og var til félag með því nafni um nokkurra ára skeið. Síðar breyttist nafnið í hjúkrunar- og móttökuritara með tilkomu sérstaks náms, en það var fyrir tilstuðlan deildaritara og í samvinnu við Starfsgreinaráð og Menntamála-ráðuneytið. Kennt er við Fjölbrautaskólann í Ármúla (heilbrigðisskólann) og hófst kennsla á árinu 2002, en þetta er 4ra anna nám í dagskóla.
Fyrstu nemendurnir útskrifuðust 2004. Haustið 2004 var farið á stað með brúarnám að tilstuðlan áður nefndra stofnanna og SFR. Námið er 2 annir. Skilyrðin fyrir inngöngu eru að hafa verið 4 ár í starfi innan heilbrigðisstofnanna og hafa sótt viðurkennd 120 stunda námskeið. Árið 2005 eftir útskrift fyrsta Brúarhópsins var ákveðið innan hópsins að stofna fagfélag sem hlaut nafnið Félag heilbrigðisritara. Á stofnfundinum 31. maí 2005 voru mættar 45 konur. Alls hafa frá upphafi til ársins 2007 útskrifast 30 konur úr dagskóla og 67 konur úr brúarnáminu. Frá 2006 hefur Fjölbrautarskólinn við Ármúla útskrifað heilbrigðisritara af heilbrigðisritarabraut. Félagskonur eru nú 78 talsins.
Sigríður Vala Ingimundardóttir, heilbrigðisritari á LSH, átti stóran þátt í að nám þetta fór af stað, en hún hefur látið af störfum vegna aldurs. Var hún gerð að heiðursfélaga FHR nr. 1 á aðalfundi félagsins 2007.
Samþykkt var lógó fyrir FHR á aðalfundi 2006, en það var hannað af Kristni Sigurðarsyni sem er grafískur hönnuður. Í framhaldi var haft samband við Markó merki sem gerði fyrir félagið merki og fána.










